Sæstrengur með ljósleiðara þvert yfir Eystrasaltið, milli Svíþjóðar og Lettlands, varð fyrir skemmdum snemma í gærmorgun. Talið er að skemmdirnar séu af völdum utanaðkomandi þátta. Skemmdirnar á sæstrengnum eru innan sænskrar efnahagslögsögu en hann …
Sæstrengur með ljósleiðara þvert yfir Eystrasaltið, milli Svíþjóðar og Lettlands, varð fyrir skemmdum snemma í gærmorgun. Talið er að skemmdirnar séu af völdum utanaðkomandi þátta.
Skemmdirnar á sæstrengnum eru innan sænskrar efnahagslögsögu en hann tilheyrir lettneska fjarskiptafyrirtækinu LMT og stofnuninni LSRTC, sem rekur þá innviði sem nýttir eru til útsendinga ríkismiðla landsins, útvarps og sjónvarps.
„Við erum í góðu sambandi við bæði Svíþjóð og NATO og höfum farið þess á leit við strandgæsluna að hún verði okkur innan handar við rannsókn málsins. Svíþjóð hefur heitið okkur aðstoð,“ sagði Evika Silina forsætisráðherra Lettlands á blaðamannafundi í gær. Herskip Atlantshafsbandalagsins eru komin á vettvang.