Bandaríska leyniþjónustan CIA telur nú líklegast að rekja megi upptök kórónuveirufaraldursins til rannsóknarstofu í Wuhan í Kína. Rannsóknarstofan, sem rannsakaði meðal annars kórónuveirur, er skammt frá matarmarkaði hvar talið er að smits hafi fyrst orðið vart. CIA tekur þó fram að „lítil vissa“ sé í matinu og að einnig sé mögulegt að faraldurinn hafi hafist á náttúrulegan hátt. » 13 og 14