Bandaríska leyniþjónustan CIA telur nú líklegast að kórónuveiran, sem olli heimsfaraldri, eigi rætur sínar að rekja til rannsóknarstofu á vegum kínverskra stjórnvalda í Wuhan. Talið er að yfir sjö milljónir manna hafi látist í faraldrinum
Hermann Nökkvi Gunnarsson
hng@mbl.is
Bandaríska leyniþjónustan CIA telur nú líklegast að kórónuveiran, sem olli heimsfaraldri, eigi rætur sínar að rekja til rannsóknarstofu á vegum kínverskra stjórnvalda í Wuhan. Talið er að yfir sjö milljónir manna hafi látist í faraldrinum.
Dagblaðið Wall Street Journal greinir frá.
„CIA metur með lítilli vissu að rannsóknartengdur uppruni kórónuveirufaraldursins sé líklegri en náttúrulegur uppruni miðað við fyrirliggjandi gögn,“ segir talsmaður stofnunarinnar í yfirlýsingu sem birt var á laugardag.
Stofnunin varaði við því að þó að þetta væri líklegasta skýringin væri niðurstaðan byggð á „lítilli vissu“.
Almennt hefur
...