„Þetta er kölluð æfing þó að þetta sé líka eins konar greining. Æfingin hefur verið í undirbúningi í marga mánuði og er þetta hluti af lengra ferli í greiningu á því hvernig kerfi myndi virka á Íslandi ef við myndum missa tengsl við útlönd,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. um æfingu á viðbrögðum við fjarskiptarofi sem fram fer á morgun, þriðjudag.
Að æfingunni standa CERT-IS (netöryggissveit Fjarskiptastofu) og almannavarnir ásamt ýmsum aðilum víða frá. CERT-IS er það yfirvald sem hefur yfirsýn yfir málefnasviði fjarskipta, en almannavarnir eru samstarfsaðilar í æfingunni. Að verkefninu koma um 180 manns frá fyrirtækjum og stofnunum stjórnsýslunnar. Hjördís segir enga áhættu fylgja þessari æfingu enda sé um að ræða sviðsmyndir og engin tengsl séu í rauninni rofin.
...