Bandaríski körfuknattleikskappinn Jeremy Pargo er genginn til liðs við Grindavík og mun leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil. Þá hefur Bandaríkjamaðurinn Devon Thomas yfirgefið herbúðir félagsins. Pargo, sem er 38 ára gamall, á að baki leiki í NBA-deildinni með Memphis Grizzlies, Cleveland Cavaliers, Philadelphia 76ers og Golden State Warriors. Hann er þriðji Bandaríkjamaðurinn í deildinni sem hefur leikið í NBA-deildinni. Hann hefur fjórum sinnum orðið ísraelskur meistari og þrívegis bikarmeistari þar í landi. Hann hefur einnig leikið í Rússlandi og Kína. Grindavík er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar með 16 stig en liðið tapaði í úrslitum Íslandsmótsins á síðustu leiktíð fyrir Val, 3:2, í oddaleik.
Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson hefur byrjað með miklum látum hjá sínu nýja félagsliði Burton Albion sem leikur í ensku C-deildinni. Jón Daði, sem er 32
...