Liverpool er áfram með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir öruggan sigur gegn Ipswich, 4:1, í 23. umferð deildarinnar á Anfield í Liverpool á laugardaginn. Dominik Szoboszlai, Mohamed Salah og Cody Gakpo skoruðu mörk…
Liverpool er áfram með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir öruggan sigur gegn Ipswich, 4:1, í 23. umferð deildarinnar á Anfield í Liverpool á laugardaginn.
Dominik Szoboszlai, Mohamed Salah og Cody Gakpo skoruðu mörk Liverpol í fyrri hálfleik og Gakpo var svo aftur á ferðinni á 65. mínútu. Jacob Greaves minnkaði muninn fyrir Ipswich með marki í uppbótartíma.
Liverpool er með 53 stig á toppnum og hefur sex stiga forskot á Arsenal, sem er með 47 stig, en Liverpool á leik til góða.
Riccardo Calafiori reyndist hetja Arsenal þegar liðið heimsótti Wolves til Wolverhampton en leiknum lauk með naumum sigri Arsenal, 1:0. Calafiori skoraði sigurmark leiksins á 74. mínútu með laglegu skoti úr teignum sem fór í stöngina
...