Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Yfir 26 þúsund Íslendingar notuðu ADHD-lyf á síðasta ári og hafa þeir aldrei verið fleiri. Kostnaður ríkisins við lyfin hefur aldrei verið meiri, en hann var árið 2023 rúmur 2,1 milljarður króna.
Í grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi kemur fram að gæðum sé ábótavant þegar kemur að bæði greiningu á ADHD og lyfjameðferð. Telur nefndin að í of ríkum mæli sé gripið til lyfjameðferðar miðað við núverandi stöðu og þekkingu. Þá telur nefndin einnig að eftirfylgd sé ábótavant. Einnig bendir hún á að örvandi lyf, á borð við Elvanse, Concerta og Rítalín, séu mest notuð við ADHD.
Í málstofu á læknadögum í síðustu viku kom fram að sérfræðingar fyndu fyrir þrýstingi frá sjúklingum til að greina ADHD.
Embætti landlæknis hefur borist ein tilkynning um misbrest á greiningarferli á ADHD. Málið er nú til skoðunar innan embættisins. Alma
...