Ný heilsugæsla sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) rekur hefur verið opnuð í sveitarfélaginu Vogum. Íbúar eru ánægðir með að geta sótt heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.
Þetta segir Guðrún P. Ólafsdóttir bæjarstjóri Voga í samtali við Morgunblaðið.
Heilsugæslan er staðsett við Iðndal 2 en 15. janúar undirritaði sveitarfélagið samning við HSS um reksturinn. Búið er að innrétta heilsugæsluna og opið er á þriðjudögum og fimmtudögum.
„Íbúar hafa kallað eftir því að geta sótt heilsugæsluþjónustu í bænum frá því hún lagðist endanlega af í kringum kórónuveirufaraldurinn. Það að heilsugæslan sé nú í bænum minnkar skutl hjá íbúum sem vinna
...