„Tæknin er til bóta, en vissulega fáum við stundum villuboð. Slíkt eru vankantar sem þarf að fjarlægja,“ segir Ármann Gestsson, varðstofustjóri hjá Neyðarlínunni. Í öllum nýjum bílum sem fá skráningu er árekstursskynjari, E-Cal, sem í…
Viðbragð Sjálfkrafa upplýsingar skiptu miklu máli, segir Ármann Gestsson.
Viðbragð Sjálfkrafa upplýsingar skiptu miklu máli, segir Ármann Gestsson. — Morgunblaðið/Eggert

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Tæknin er til bóta, en vissulega fáum við stundum villuboð. Slíkt eru vankantar sem þarf að fjarlægja,“ segir Ármann Gestsson, varðstofustjóri hjá Neyðarlínunni. Í öllum nýjum bílum sem fá skráningu er árekstursskynjari, E-Cal, sem í alvarlegum tilvikum, til dæmis þegar öryggisbelgur blæs út, gerir Neyðarlínu viðvart. Í stjórnstöð hennar fara þá upplýsingar um stöðu mála og sjálfkrafa opnast fyrir hljóðnema í bílnum svo samtal við neyðarverði komist á.

...