Íslenska karlalandsliðið í handbolta er úr leik á heimsmeistaramótinu í Króatíu, Danmörku og Noregi, þrátt fyrir stórsigur gegn Argentínu í lokaumferð milliriðils fjögur í Zagreb í gær. Leiknum lauk með níu marka sigri Íslands, 30:21, en Óðinn Þór…
Svekkjandi Teitur Örn Einarsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Stiven Valencia, Elvar Örn Jónsson og Óðinn Þór Ríkharðsson eftir sigurinn í gær.
Svekkjandi Teitur Örn Einarsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Stiven Valencia, Elvar Örn Jónsson og Óðinn Þór Ríkharðsson eftir sigurinn í gær. — Morgunblaðið/Eyþór

Íslenska karlalandsliðið í handbolta er úr leik á heimsmeistaramótinu í Króatíu, Danmörku og Noregi, þrátt fyrir stórsigur gegn Argentínu í lokaumferð milliriðils fjögur í Zagreb í gær. Leiknum lauk með níu marka sigri Íslands, 30:21, en Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk.

Eftir sex marka tapið gegn Króatíu á föstudaginn, 32:26, var ljóst fyrir leik gærdagsins að Ísland þurfti að treysta á að annaðhvort Egyptaland eða Króatía töpuðu stigum í viðureignum sínum í Zagreb í gær. Íslenska liðinu varð ekki að ósk sinni því að Egyptaland vann öruggan sigur gegn Grænhöfðaeyjum, 31:24, og Króatía lagði Slóveníu að velli með þriggja marka mun, 29:26. Ísland hafnaði í níunda sæti mótsins og var eina liðið í milliriðlakeppninni sem komst ekki áfram með átta stig. Níunda sætið er jafnframt besti árangur Íslands á heimsmeistaramótinu síðan árið 2011 en þá hafnaði liðið

...