Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ragnar Heiðar Harðarson hefur verið rakari á Rakarastofu Ragnars og Harðar á Vesturgötu 48 í Reykjavík undanfarin 50 ár. „Ég ætlaði að hætta núna, þar sem ég er að detta í að verða 67 ára, en hætti við það og stefni á að halda áfram þar til ég verð níræður,“ segir hann.
Hörður Þórarinsson, faðir Ragnars Heiðars, opnaði stofuna 14. febrúar 1957. „Þetta var fimmta rakarastofan á Vesturgötunni og er sennilega sú elsta á sama stað í Reykjavík,“ segir Ragnar Heiðar. Hann fæddist í húsinu við hliðina og flutti aftur á æskuslóðir fyrir um 20 árum. Sem unglingur vann hann við að mála á sumrin með bróður sínum og sá fyrir sér að hann yrði málari, þar til bróðir hans flutti til Danmerkur vegna verkefnaskorts. „Ég fékk enga vinnu og þá sagði kallinn
...