„Þetta er því miður miklu algengara en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir Birna Varðardóttir um átröskun í keppnisíþróttum, en hún varði nýlega doktorsverkefni sitt tengt hlutfallslegum orkuskorti í íþróttum.
„Í doktorsrannsókn minni skimuðum við meðal annars fyrir átröskunarhegðun hjá íslensku afreksíþróttafólki og yfir heildina reyndust um tíu prósent vera með veruleg einkenni átröskunarhegðunar,“ segir Birna og bætir við að átraskanir séu sérstakur áhættuþáttur fyrir hlutfallslegan orkuskort. „Ef þú borðar ekki í samræmi við þarfir getur það bitnað verulega á líkamskerfum þínum og þar með árangri líka.“
Neikvæð líkamsímynd algeng
Hún segir að þátttakendur í rannsókninni hafi verið íþróttakonur og -karlar á nokkuð breiðu aldursbili og úr fjölbreyttum íþróttum.
...