Bækur
Sölvi
Sveinsson
Þessi bók er umskrifuð doktorsritgerð Ingunnar og hér er rýnt í annars vegar Eddu Snorra, en þó einkum í goðakvæði og dróttkvæði og ýmsar aðrar heimildir sem lýsa fornum átrúnaði, m.a. í heitum og kenningum. Þar skera fornleifar sig úr, grafir, myndsteinar frá Gotlandi o.v., gullþynnur o.fl. Þetta eru þöglar heimildir í þeim skilningi að við verðum að ráða í hvað blasir við augum (103). Ritheimildir eru síðan skráðar löngu eftir að kristni var lögtekin, u.þ.b. tveimur öldum og þaðan af síðar. Margt er því (blessunarlega?) óljóst og áhugavert og því hafa fræðimenn nokkuð að sýsla. Enginn veit hvaða heimildir hafa glatast, en sífellt bætast nýjar í púkkið eftir því sem fleiri fornleifar eru grafnar upp með krefjandi spurningum.
Það
...