Ísland vann sannfærandi níu marka sigur á Argentínu, 30:21, í lokaleik sínum á heimsmeistaramóti karla í handbolta í Arena Zagreb-höllinni í höfuðborg Króatíu í gær. Þrátt fyrir fimmta sigurinn í sex leikjum er íslenska liðið úr leik á mótinu þar…
Takk Leikmenn íslenska liðsins þakka fyrir stuðninginn á heimsmeistaramótinu í Zagreb í Króatíu í gærdag.
Takk Leikmenn íslenska liðsins þakka fyrir stuðninginn á heimsmeistaramótinu í Zagreb í Króatíu í gærdag. — Morgunblaðið/Eyþór

Í Zagreb

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Ísland vann sannfærandi níu marka sigur á Argentínu, 30:21, í lokaleik sínum á heimsmeistaramóti karla í handbolta í Arena Zagreb-höllinni í höfuðborg Króatíu í gær.

Þrátt fyrir fimmta sigurinn í sex leikjum er íslenska liðið úr leik á mótinu þar sem Egyptaland og Króatía unnu sína leiki og fóru í átta liða úrslit á meðan Ísland situr eftir með sárt ennið.

Íslenska liðið fór hægt af stað í gær og var leikurinn í járnum þar til um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Þá glitti í gæðin í íslenska liðinu sem keyrði yfir það argentínska og var sigurinn aldrei í hættu í seinni hálfleik.

Eftir leik tók svo við löng og leiðinleg bið þar

...