„Við gerðum þetta allt í lagi,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson í samtali við Morgunblaðið.
„Við vorum lélegir í 15-20 mínútur og það var erfitt að gíra sig upp í þennan leik. Menn voru enn drullufúlir. Við hristum það af okkur í lok fyrri og svo var þetta aldrei spurning. Það fór ekki á milli mála að Króatíuleikurinn sat í okkur og við þurfum að vera hreinskilnir með það. Við vissum að við værum að fara að mæta slakari mótherja en við gerðum þetta fínt. Á góðum degi getum við unnið þetta lið töluvert stærra,“ sagði Aron.
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari tók leikhlé í jafnri stöðu um miðjan fyrri hálfleik og lét sína menn heyra það. „Hann var að sparka í rassgatið á okkur og við hlýddum því. Við gerðum allt 10-15 prósentum betra,“ bætti landsliðsfyrirliðinn við
...