— AFP/Omar Al-Qattaa

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur stungið upp á því að flytja alla íbúa Gasasvæðisins til Egyptalands og Jórdaníu.

Trump sagði fjölmiðlum í gær að Gasa væri orðið að niðurrifssvæði (e. demolition site) eftir 15 mánaða stríð. Sagðist hann þegar hafa rætt við Abdullah II. konung Jórdaníu um að flytja Palestínumenn frá svæðinu.

„Ég vil að Egyptaland taki við fólki. Og ég vil að Jórdanía taki við fólki,“ sagði Trump. Bætti hann við að hann gerði ráð fyrir að ræða við Abdel Fattah al-Sisi forseta Egyptalands.

Samningur um vopnahlé á milli Ísraels og hryðjuverkasamtakanna Hamas tók gildi 19. janúar og á að gilda í 42 daga. Fjórum ísraelskum gíslum og um 200 palestínskum föngum var sleppt á laugardaginn.