Átta liða úrslit heimsmeistaramóts karla í handbolta hefjast á morgun með tveimur leikjum sem báðir fara fram í Zagreb í Króatíu. Frakkland, sem hafnaði í efsta sæti milliriðils þrjú, mætir Egyptalandi, sem hafnaði í öðru sæti milliriðils fjögur, í fyrri leik dagsins
HM 2025
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Átta liða úrslit heimsmeistaramóts karla í handbolta hefjast á morgun með tveimur leikjum sem báðir fara fram í Zagreb í Króatíu.
Frakkland, sem hafnaði í efsta sæti milliriðils þrjú, mætir Egyptalandi, sem hafnaði í öðru sæti milliriðils fjögur, í fyrri leik dagsins.
Frakkar hafa unnið alla sex leiki sína á mótinu mjög sannfærandi og enduðu með 10 stig eða fullt hús stiga. Frakkar hafa lagt Katar, Kúveit, Austurríki, Ungverjaland, Holland og Norður-Makedóníu að velli á leið sinni í átta liða úrslitin.
Egyptar hafa unnið fimm af sex leikjum sínum á mótinu og enduðu með átta stig í milliriðlinum. Liðið vann Argentínu, Barein og loks Króatíu
...