Blaðamennska Fiskveiðilögsagan var færð út í 50 mílur 1. september 1972. Morgunblaðið sendi Geir og Brynjólf Helgason ljósmyndara með Víkingi III út á miðin frá Ísafirði til að fylgjast með breskum togurum.

Mogginn

Síðla vetrar 1972 skrifaði ég Matthíasi Johannessen ritstjóra Morgunblaðsins bréf og óskaði eftir sumarvinnu á blaðinu. Ég hafði kynnst Matthíasi og falast eftir vinnu sumarið eftir stúdentspróf án árangurs. Ég fékk ekkert svar við bréfi mínu en nokkru síðar barst einu sinni sem oftar bréf frá vini mínum Kjartani Gunnarssyni. Hann hafði verið á gangi á Ránargötunni og rekist á Matthías sem hafði umsvifalaust beðið Kjartan um að koma til mín skilaboðum um að ég gæti mætt til vinnu þegar ég kæmi heim í byrjun júní. Ég var himinlifandi yfir þessu en vissi samt aldrei hvað orðið hefði ef Kjartan hefði ekki fyrir tilviljun hitt Matthías úti á götu! Ég hafði skrifað pistla í Moggann af og til frá því ég fór til Bandaríkjanna en næstu sex sumur var ég þar í sumarstarfi og síðan í hlutastarfi við erlend fréttaskrif allt til ársins 1983. Þetta var frábærlega skemmtilegt og lærdómsríkt þótt stundum gæti verið

...