Fram er komið í annað sæti úrvalsdeildar kvenna í handbolta eftir stórsigur gegn ÍBV í 13. umferð deildarinnar í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Leiknum lauk með átta marka sigri Framara, 25:17, en Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst hjá Frömurum með sjö mörk.
Fram er með 20 stig í öðru sæti deildarinnar, eins og Haukar, en ríkjandi Íslandsmeistarar Vals eru sem fyrr í efsta sætinu með 24 stig og hafa aðeins tapað einum leik á tímabilinu til þessa, gegn Haukum.
Vandræði ÍBV halda áfram en liðið er í sjöunda og næstneðsta sætinu með einungis sex stig, fjórum stigum meira en Grótta. Þetta var áttundi ósigur Eyjakvenna í röð í deildinni en liðið vann síðast leik þann 5. október gegn Stjörnunni í Garðabænum.
Birna Berg Haraldsdóttir, Birna María Unnarsdóttir
...