Rannsóknarnefnd samgönguslysa var í gær kölluð á Reykjavíkurflugvöll þar sem kennsluflugvél af gerðinni Cessna Skyhawk C-172N fór út af braut við lendingu.
Hálka var á flugbrautinni og hlekktist vélinni á í lendingu. Einn var um borð í vélinni og sakaði hann ekki. Brautinni var lokað tímabundið á meðan nefndin var að störfum. Ragnar Guðmundsson, rannsakandi hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa, segir erfitt að segja til um hversu langan tíma rannsókn taki.