Guðríður Hannesdóttir fæddist 22. mars 1948 á Akranesi og ólst upp á Suðurgötu 87. Hún lést 1. janúar 2025.
Foreldrar hennar voru Hannes Þjóðbjörnsson og Rannveig Ólafía Jóhannesdóttir. Systkini hennar eru Sigurjón, f. 18. ágúst 1938, sem lést í júní 2017, Guðbjörg Fanney, f. 10. janúar 1941, Þjóðbjörn, f. 18. febrúar 1945, og Guðbjartur, f. 3. júní 1950, en hann lést í október 2015.
Guðríður var gift Jóhanni Þóroddssyni og börn þeirra eru: 1) Valgerður, f. 21. júní 1970, gift Saikou Badjei. Börn Valgerðar eru Maríanna Vestmann Grétarsdóttir, f. 7. nóvember 1987, og Sigurrós Vestmann Þórðardóttir, f. 31. október 2002. 2) Þjóðbjörn, f. 30. apríl 1974, en hann lést í apríl 2021. 3) Rannveig, f. 28. apríl 1976, gift Sigurbrandi Jakobssyni. Þeirra börn eru Embla Rós Vestmann, f. 3. apríl 2003, Aníta Sif Vestmann, f. 29. apríl 2005, Einar Snær
...