Eftir sjö ár í stjórnarandstöðu er Flokkur fólksins loksins kominn í ríkisstjórn. En til hvers erum við í pólitík? Af hverju fórum við í það ferli að semja við aðra stjórnmálaflokka og gera málamiðlanir? Jú, það var til þess að ná fram raunverulegum breytingum í þágu fólksins!
Á þessu kjörtímabili ætlum við að stöðva kjaragliðnun launa og lífeyris. Ríkisstjórnin mun hækka örorku- og ellilífeyri á hverju ári til samræmis við hækkun launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag. Þá verður líka gripið til frekari aðgerða til að bæta grunnframfærslu tekjulágra lífeyrisþega umfram vísitöluþróun.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður lögfestur. Samningar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) sem gefin hafa verið fyrirheit um verða fjármagnaðir. Stofnaður verður aðgengis- og aðlögunarsjóður til að styrkja fatlað fólk til breytinga á
...