Stríð hefur geisað í Úkraínu í 1.069 daga. Innrásarherinn frá Rússlandi hefur náð um tuttugu prósentum af landinu en það hefur kostað þá 800 þúsund hermenn, samkvæmt upplýsingum frá úkraínskum yfirvöldum. Eru þá taldir bæði fallnir og særðir í átökunum. Mannfall Úkraínumanna er talið talsvert minna en staðfestar tölur liggja ekki fyrir.
Karl Garðarsson, fyrrverandi fréttamaður og þingmaður, hefur fylgst grannt með átökunum frá því að þau hófust. Eiginkona hans er frá Úkraínu og hann hefur farið fjölmargar ferðir til landsins frá því að stríðið hófst, nú síðast fyrir nokkrum mánuðum. Karl er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag og ræðir hann þar ástandið í landinu og leggur mat á stöðuna.