Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Flokkur fólksins á gjaldþrot á hættu verði honum gert að endurgreiða styrki, sem greiddir voru flokknum undanfarin þrjú ár án þess að hann uppfyllti lagaskilyrði um fjárstuðning hins opinbera við stjórnmálaflokka. Þetta sagði Inga Sæland formaður flokksins við fjölmiðla í gær, en skýrast kann hvað úr verður að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Lögfræðingar sem Morgunblaðið hefur borið málið undir telja að Fjársýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekkert val um þá styrki, sem ofgreiddir voru undanfarin ár; krefjast verði endurgreiðslu þeirra. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsti svipuðum sjónarmiðum í viðtali við Rúv.
Miðað við síðustu ársreikninga hefur Flokkur fólksins ekki bolmagn til þess að greiða nema lítinn hluta þeirra 240
...