Umræða um fjármál stjórnmálaflokka hefur reglulega blossað upp, enda snertifletir fjármála og stjórnmála viðkvæmir, og vel þekkt víða um veröld að þeir geta boðið heim hættu á spillingu. Þess vegna eru í öllum ríkjum einhvers konar varnaglar slegnir …
Ríkisstjórn Meðan allt lék í lyndi hjá nýmyndaðri ríkisstjórn valkyrjanna rétt fyrir jól. Gamanið kárnaði hins vegar snögglega eftir að upplýst var að Flokkur fólksins hefði á þremur árum fengið 240 m.kr. styrki án lagaheimildar.
Ríkisstjórn Meðan allt lék í lyndi hjá nýmyndaðri ríkisstjórn valkyrjanna rétt fyrir jól. Gamanið kárnaði hins vegar snögglega eftir að upplýst var að Flokkur fólksins hefði á þremur árum fengið 240 m.kr. styrki án lagaheimildar. — Morgunblaðið/Eyþór

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Umræða um fjármál stjórnmálaflokka hefur reglulega blossað upp, enda snertifletir fjármála og stjórnmála viðkvæmir, og vel þekkt víða um veröld að þeir geta boðið heim hættu á spillingu.

Þess vegna eru í öllum ríkjum einhvers konar varnaglar slegnir og iðulega töluvert regluverk til þess að koma í veg fyrir að eitthvað misjafnt geti átt sér stað og stjórnmálaflokkar eða stjórnmálamenn séu í vasanum hjá hagsmunaöflum, veskisvasanum.

Eftir sem áður kostar að reka stjórnmálaflokka, bæði hvað varðar reglulegan rekstur á flokksskrifstofum, greiningar og stefnumótun, útgáfu og áróður, að ógleymdum kosningabaráttum, sem kosta skildinginn, hvað sem líður fórnfúsu sjálfboðaliðastarfi flokksfélaga við stólaburð, kökubakstur og útburð

...