„Mér finnst þessi frétt vera með ólíkindum, ef hún er sönn. Ef Inga [Sæland] er orðin ráðherra á þessum tíma þá er þetta mikil misbeiting á ráðherravaldi, sem ég myndi segja að væri mjög alvarlegt.“ Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrv
Guðrún Hafsteinsdóttir
Guðrún Hafsteinsdóttir

Hermann Nökkvi Gunnarsson

hng@mbl.is

„Mér finnst þessi frétt vera með ólíkindum, ef hún er sönn. Ef Inga [Sæland] er orðin ráðherra á þessum tíma þá er þetta mikil misbeiting á ráðherravaldi, sem ég myndi segja að væri mjög alvarlegt.“

Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrv. dómsmálaráðherra, í samtali við Morgunblaðið um meint efnistök samtals Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, við skólameistara Borgarholtsskóla, Ársæl Guðmundsson.

Inga hringdi fyrir þremur vikum í Ársæl vegna þess að skópar í eigu barnabarns hennar hafði týnst. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur skólameistarinn sagt við fjölda fólks að Inga hafi minnst á ítök sín innan lögreglunnar og stöðu sína í samfélaginu.

...