Friðrik Daníelsson
Hin ríku Vesturlönd, sem við höldum að séu heimili lýðræðis og sanngirni, hafa haldið mörgum fátækari löndum í örbirgð og einangrun með viðskiptahöftum, fjáraustri í spillingaröfl, valdaránum, manndrápum og ránum. Þetta á sérstaklega við um lönd þar sem er að finna verðmætar auðlindir sem stórfyrirtæki Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands og fleiri Vesturlanda vilja komast yfir, t.d. Íran, Víetnam, Gvatemala, Síle, Írak, Afganistan, Sýrland, Líbíu, Úkraínu og Palestínu. Og nú beinast áætlanirnar gegn Venesúela, olíuríkasta landi heims.
Drottnun stríðsvelda Vesturlanda, Bandaríkjanna, Evrópusambandslanda og Bretlands, yfir heimsbyggðinni er í upplausn. Tilraunir til að leggja undir sig lönd og komast í auðlindir þeirra, með samningssvikum, efnahagsþvingunum og hernaði, mæta nú sterkari andstöðu. Sjálfstæðar þjóðir heims eru farnar
...