Haldið var upp á það á Akureyri sl. sunnudag að 25 ár eru liðin frá því að Björgunarsveitin Súlur var stofnuð. Varð hún til við sameiningu Hjálparsveitar skáta á Akureyri, Flugbjörgunarsveitarinnar og Sjóbjörgunarsveitar SVFÍ.
Opið hús var í húsnæði Súlna á Hjalteyrargötu 12 og komu um 300 manns til að heiðra „afmælisbarnið“. Meðal þeirra voru bæjarfulltrúar, þingmenn og forystufólk úr Landsbjörg. Fyrstu sneið af heljarinnar afmælistertu skáru í sameiningu þau Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Landsbjargar, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Halldór Halldórsson formaður Súlna.