„Forsætisráðherra Danmerkur boðaði til þessa óformlega fundar í Kaupmannahöfn með skömmum fyrirvara þar sem nokkrir leiðtogar Norðurlanda voru á leið til minningarathafnar í Auschwitz. Utanríkisráðherra verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda á minningarathöfninni
Mette Frederiksen
Mette Frederiksen

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Forsætisráðherra Danmerkur boðaði til þessa óformlega fundar í Kaupmannahöfn með skömmum fyrirvara þar sem nokkrir leiðtogar Norðurlanda voru á leið til minningarathafnar í Auschwitz. Utanríkisráðherra verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda á minningarathöfninni. Forsætisráðherra var látinn vita af fundinum,“ segir í skriflegu svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Fram kemur í svari ráðuneytisins að til fundarins hafi verið boðað með of skömmum fyrirvara til að forsætisráðherra gæti mætt. „En hún var þó upplýst samdægurs um að fundurinn yrði haldinn og upplýst um efni fundarins,“ segir í svarinu.

Spurt var hvort Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefð fengið boð um að sitja óformlegan fund sem

...