Fyrstu viðbrögð Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins og ráðherra, við spurningum um ólögmæta styrki til flokksins voru að endurgreiðsla kæmi ekki til greina, þótt hún játaði að sér hefði verið fullkunnugt um að flokkurinn stæðist ekki lagaskilyrði til þeirra. Í gær sagði hún fjölmiðlum að yrði honum gert að greiða styrki síðustu þriggja ára aftur, alls 240 milljónir króna, jafngilti það gjaldþroti. Þótt flokkurinn eigi miðað við ársreikning töluvert fé handbært hrekkur það engan veginn til og hann getur engar tryggingar veitt fyrir láni til þess arna heldur.