Snævi þaktir vegir, húsþök, gangstéttir og gróður minna landsmenn á þá árstíð sem nú ríkir. Þótt ökumenn kunni að bölva færðinni sem henni fylgir er ekki annað hægt en að dást að ásýnd vetrarins þegar nýfallin fönn umlykur allt eins og á myndinni hér fyrir ofan sem sýnir Öskjuhlíðina í vetrarklæðum. Rétt ofan við trén sést glitta í glerhvolf Ingimundar Sveinssonar sem hvílir ofan á hitaveitugeymunum sex.