Sveinn Tyrfingsson fæddist í Lækjartúni í Ásahreppi 28. janúar 1941. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu 14. janúar 2025.

Foreldrar Sveins voru hjónin Tyrfingur Tyrfingsson frá Ártúnum á Rangárvöllum, f. 12. nóvember 1901, d. 28. júní 1961, og Kristín Margrét Jónsdóttir frá Vatnsfjarðarseli í N-Ísafjarðarsýslu, f. 7. október 1901, d. 7. mars 1978. Systkini Sveins eru Guðbjörg Jóna, f. 1928, d. 2015, Tyrfingur, f. 1929, d. 2020, Guðmunda Júlíana. f. 1930, Guðmunda. f. 1932, Guðmundur. f. 1933, Árni Héðinn, f. 1934, d. 2002, Gróa Sæbjörg. f. 1936, d. 2021, Fjóla, f. 1938 og Guðrún, f. 1943.

Sveinn kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Jórunni Eggertsdóttur frá Þorvaldseyri undir Austur-Eyjafjöllum, 17. maí 1970. Jórunn fæddist 2. júní 1950. Foreldrar hennar voru Eggert Ólafsson bóndi, f. 1913, d. 1997, og Ingibjörg Nyhagen Ólafsson

...