Landsnet hefur náð samningum við alla landeigendur vegna lagningar jarðstrengs milli Akureyrar og Dalvíkur, Dalvíkurlínu 2. Morgunblaðið sagði frá því í september að viðræður við eigendur tveggja jarða í Hörgársveit hefðu gengið illa
Ólafur Pálsson
olafur@mbl.is
Landsnet hefur náð samningum við alla landeigendur vegna lagningar jarðstrengs milli Akureyrar og Dalvíkur, Dalvíkurlínu 2.
Morgunblaðið sagði frá því í september að viðræður við eigendur tveggja jarða í Hörgársveit hefðu gengið illa.
Unnið að fínstillingu
Nú eru samningar sum sé í höfn en Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir að vinna við strenginn liggi niðri í vetur.
Nú sé unnið að fínstillingu á leiðinni með Vegagerðinni en reiknað er með að vinna við strenginn hefjist aftur með vorinu.
Í dag liggur loftlína á milli Akureyrar og Dalvíkur, Dalvíkurlína 1.
...