Fyrir um þremur vikum hringdi Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í skólameistara Borgarholtsskóla vegna þess að svartir strigaskór barnabarns hennar týndust í skólanum. Skórnir höfðu verið týndir í um það bil dag þegar Ársæll Guðmundsson…
Inga Sæland
Inga Sæland

Fyrir um þremur vikum hringdi Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í skólameistara Borgarholtsskóla vegna þess að svartir strigaskór barnabarns hennar týndust í skólanum. Skórnir höfðu verið týndir í um það bil dag þegar Ársæll Guðmundsson skólameistari fékk símtalið sem var þess eðlis að hann gat ekki orða bundist, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Á kaffistofu kennara, hvar nokkrir tugir kennara voru mættir í hádegismat, upplýsti hann um efnistök símtalsins. Viðmælandi Morgunblaðsins, sem varð vitni að ávarpinu, sagði skólameistarann hafa sagt að „hann hefði upplifað ýmislegt á 35 árum sem stjórnandi og sveitarstjórnarmaður en aldrei svona“.

Inga er sögð hafa bent skólameistaranum á stöðu sína í samfélaginu sem ráðherra og þá sérstaklega bent á ítök sín innan lögreglunnar.

...