Sem fyrsta markverða skrefið til að draga úr tortryggni og auka traust mætti benda nýrri ríkisstjórn á að hætta strax við öll ESB-áform.
Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhannsson

Sigurður Ingi Jóhannsson

Þann 4. febrúar næstkomandi verður Alþingi sett og hefst þar með nýtt kjörtímabil nýrrar ríkisstjórnar. Rétt er í upphafi að óska þeirri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum sínum fyrir land og þjóð. Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar segir að fyrsta verk hennar sé að ná stöðugleika í efnahagslífi, lækka vexti og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi. Það er vel, en hins vegar er lítið fjallað um það í meðfylgjandi 23 aðgerðum hvernig þessu skuli náð. Þó er sagt að ný ríkisstjórn muni rjúfa kyrrstöðu í atvinnulífinu.

Hvað er kyrrstaða?

Óneitanlega vaknar þá spurningin um hvað kyrrstaða er í hugum oddvita ríkisstjórnarinnar, þegar atvinnuþátttaka hefur sjaldan verið meiri á Íslandi síðustu misseri. Atvinnuleysi er lítið. Á síðustu 7 árum hafa 25 þúsund nýjar íbúðir komið á markað.

...