Flest ríki á Vesturlöndum fordæmdu í gær forsetakosningarnar í Hvíta-Rússlandi sem fóru fram á sunnudaginn.
Sitjandi forseti, Alexander Lúkasjenkó, segist hafa unnið þær með rúmlega 86% greiddra atkvæða, en vesturveldin segja því fara fjarri að kosningarnar geti talist gildar.
Breska utanríkisráðuneytið greindi frá því í gær að Bretar og Kanadamenn hefðu sett viðskiptaþvinganir á Hvíta-Rússland vegna kosninganna, og ná þær til sex Hvít-Rússa og þriggja fyrirtækja í varnarmálaiðnaði landsins.
Stjórnvöld í Rússlandi og Kína sendu Lúkasjenkó hamingjuóskir í gær vegna „úrslitanna“, og sagðist Pútín Rússlandsforseti hlakka til að bjóða honum aftur til Moskvu.