Þrír blotakaflar í vetur og þær vatnssparandi aðgerðir sem gripið hefur verið til hafa bætt vatnsbúskap Landsvirkjunar. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu fyrirtækisins.
Nú er svo komið að staða Þórisvatns er ívið betri en á sama tíma í fyrra, en vatnsárið byrjaði í sögulegu lágmarki. Staðan er þó enn vel undir meðallagi, en hefur þó skánað það mikið að ekki telst ástæða til að halda áfram endurkaupum af járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga, eins og heimild er til í samningi við fyrirtækið.
Í desember var ákveðið að virkja endurkaupaákvæði í samningum Elkem og var þá reiknað með að endurkaup stæðu fram í byrjun febrúar hið minnsta. Það var síðasta vatnssparandi úrræði sem Landsvirkjun hafði yfir að ráða og jafnframt það kostnaðarsamasta. „Það er því ánægjulegt að geta nú hætt þeim kaupum,“ segir í tilkynningunni.
...