Fyrstu tónleikarnir á vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans verða haldnir á morgun, miðvikudaginn 29. janúar, kl. 20 á Björtuloftum, Hörpu. Þar kemur fram gítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson ásamt hljómsveit og leikur úrval laga úr eigin smiðju, að því er segir í tilkynningu. Efnisskráin samanstendur af útgefinni tónlist af fyrstu plötu Hróðmars í bland við nýrri tónsmíðar sem væntanlegar eru á næstu plötu hans.

Ásamt Hróðmari koma fram Elvar Bragi Kristjónsson sem leikur á trompet og flugelhorn, saxófónleikarinn Sölvi Kolbeinsson, Birgir Steinn Theodórsson sem leikur á bassa og Kristófer Rodriguez Svönuson á trommur og slagverk. Vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan maí. Miðasala fer fram á harpa.is.