Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti um helgina á fjölmennum fundi stuðningsmanna í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, að hún gæfi kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins, sem hefst 28
Sjálfstæðisflokkur Forysta flokksins á landsfundi 2022. Nú kveðja bæði formaður og varaformaður, en Vilhjálmur Árnason ritari vill sitja áfram.
Sjálfstæðisflokkur Forysta flokksins á landsfundi 2022. Nú kveðja bæði formaður og varaformaður, en Vilhjálmur Árnason ritari vill sitja áfram. — Ljósmynd/HAG

Baksvið

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti um helgina á fjölmennum fundi stuðningsmanna í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, að hún gæfi kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins, sem hefst 28. febrúar.

Þar með varð hún fyrst til þess að gefa sig fram í kjöri nýrrar forystu flokksins, eftir að Bjarni Benediktsson formaður tilkynnti að hann sæktist ekki eftir endurkjöri og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður gaf það frá sér.

Þar með fækkaði í hóp mögulegra formannsefna flokksins, en það er nokkuð samdóma álit að nýr formaður verði að koma úr þingflokknum, sem leiðir stjórnarandstöðu í upphafi nýs kjörtímabils.

...