Ekki kemur annað til greina en að Fjársýsla ríkisins krefji Flokk fólksins um oftekna styrki úr ríkissjóði undanfarin ár. Lögfræðingar sem blaðið bar málið undir segja lagalega ekki útilokað – þó að það kunni að reynast erfitt af pólitískum sökum –…

Ekki kemur annað til greina en að Fjársýsla ríkisins krefji Flokk fólksins um oftekna styrki úr ríkissjóði undanfarin ár.

Lögfræðingar sem blaðið bar málið undir segja lagalega ekki útilokað – þó að það kunni að reynast erfitt af pólitískum sökum – að flokkurinn geti sótt styrk fyrir árið í ár fullnægi hann lagaskilyrðum innan tíðar. Hins vegar sé útilokað að hann geti undið ofan af styrkjum fyrri ára, sem hann hafi veitt viðtöku þrátt fyrir að standast ekki skilyrðin.

Þeir telja að Fjársýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekkert val um það, engin ákvörðun í stjórnsýslunni geti gengið á skýr lagaskilyrði og fyrirmæli fjárlaga.

Þetta á ekki aðeins við um Flokk fólksins, Vinstri grænir eru undir sömu sök seldir.