Hugmynd Samkaupa um nýtísku verslunarkjarna við smábátahöfnina brýtur algjörlega í bága við hið sérstæða og dýrmæta miðbæjarskipulag Siglufjarðar.
Kvikmyndahús Gamla bíóhúsið við Aðalgötu er autt og yfirgefið.
Kvikmyndahús Gamla bíóhúsið við Aðalgötu er autt og yfirgefið.

Örlygur Kristfinnsson

Samkaup áforma nú að reisa nýjan verslunarkjarna á Siglufirði. Það er afar gleðilegt að fyrirtækið vilji fjárfesta í nýjum húsakynnum og bæta þannig og auka þjónustu sína. Og fyrstu kynningarmyndir sýna jafnvel ekki ósnotrar byggingar. Með einu meginverslunarrými – og „í framhaldi koma minni smávöruverslanir“ í álmu þar við hlið.

Gallinn er sá að allt er þetta með mjög nútímalegu sniði sem fellur ekki að gamalli bæjarmynd Siglufjarðar – sem fyrirtæki, félög og einstaklingar hafa á undanförnum áratugum lagt mikla áherslu á (og fjármuni í) að varðveita og skerpa. Og þessar fyrirhuguðu nýbyggingar verða „ofan í“ gömlum byggingum sem hafa verið endurreistar með glæsibrag og þjóna mikilvægu hlutverki – og að öðru leyti á dýrmætu opnu svæði fast við smábátahöfnina. Þar sem okkur hafði

...