Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís Haraldsdóttir

Vestnorræna ráðið, samstarfsráð Íslands, Færeyja og Grænlands, lýsir fullum stuðningi við Grænland sem hefur setið undir undarlegum ógnunum frá Donald Trump Bandaríkjaforseta sem hefur sagst vilja ná landinu á sitt vald. Þetta kemur fram í ályktun ráðsins.

Bryndís Haraldsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins situr í ráðinu og er sú sem kallaði eftir því að staða Grænlands yrði tekin fyrir þar.

Hún segir að í ályktuninni kalli ráðið eftir því að önnur þingsamtök styðji við Grænland opinberlega.

„Við erum auðvitað að beina sjónum okkar til Bandaríkjanna og að þessum þingmönnum þar, að þeir fari nú kannski að íhuga hvað forseti þeirra er að segja,“ segir Bryndís í samtali við Morgunblaðið. » 4 og 13