Enski tónlistarmaðurinn David Bowie (1947-2016) á sér marga aðdáendur víða um heim og Björn Lúðvíksson, myndlistarmaður með meiru, heldur minningu hans hátt á lofti á Akranesi. Björn, eða Bjössilú eins og hann er gjarnan kallaður, féll fyrir goðinu um 1970
Í stofunni David Bowie er alltumlykjandi heima hjá Jennu og Bjössalú.
Í stofunni David Bowie er alltumlykjandi heima hjá Jennu og Bjössalú.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Enski tónlistarmaðurinn David Bowie (1947-2016) á sér marga aðdáendur víða um heim og Björn Lúðvíksson, myndlistarmaður með meiru, heldur minningu hans hátt á lofti á Akranesi.

Björn, eða Bjössilú eins og hann er gjarnan kallaður, féll fyrir goðinu um 1970. Löngu síðar kynntist hann Jennu Katrínu Gottlieb, sem deildi áhuganum á Bowie, vinskapurinn varð að hjónabandi og þau eiga ótrúlegt safn muna sem tengjast tónlistarmanninum. Hann hefur málað myndir af Bowie og fengið aðra myndlistarmenn á Akranesi til að gera slíkt hið sama fyrir sig og Jennu. Þau ásamt Halldóri R. Lárussyni, grafískum hönnuði, hafa staðið fyrir tveimur sýningum á Akranesi um Bowie og þeir Halldór máluðu myndir á vegg við Kirkjubraut 2017 til heiðurs listamanninum. „Það eru svona veggir víða

...