Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að það kallaði á sérstaka skoðun ráðuneytisins af hverju Flokkur fólksins fékk opinbera styrki í trássi við lög árum saman. Í ljósi orða Ingu Sæland um að henni hafi verið…
Daði Már Kristófersson
Daði Már Kristófersson

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að það kallaði á sérstaka skoðun ráðuneytisins af hverju Flokkur fólksins fékk opinbera styrki í trássi við lög árum saman. Í ljósi orða Ingu Sæland um að henni hafi verið kunnugt um meinbugina á útgreiðslu styrkjanna, kunna þó önnur embætti að þurfa að rannsaka það. Minnast má að forstöðumenn Zúista hlutu fangelsisdóma í Landsrétti í fyrra fyrir að taka við greiðslum frá Fjársýslunni, sem taldi að trúfélagið uppfyllti skilyrði skráningar.