Við ætlum að setja kraft í framtíðina, kraft í sjálfbærnina, kraft í jafnréttismál og koma Íslandi í stuð.
Jafnrétti er ákvörðun og aðgerðir, en ekki bara orð, segir Sólrún Jóna, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs.
Jafnrétti er ákvörðun og aðgerðir, en ekki bara orð, segir Sólrún Jóna, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs. — Morgunblaðið/Eggert

Það er mikil þróun að eiga sér stað í orkumálum og það finnst mér virkilega spennandi, umhverfið er kvikt og ört, sem krefst hraðrar ákvarðanatöku en um leið sveigjanleika,“ segir Sólrún Jóna Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Orkusölunnar.

„Sem stjórnandi hef ég fundið fyrir því hvernig stefna í jafnréttismálum getur mótað bæði vinnustaðinn og einstaklingana sem þar starfa. Fyrirtæki sem leggja áherslu á að tryggja jafnrétti veita starfsfólki sínu aukna trú á eigin getu, traust til að taka mikilvægar ákvarðanir og rými til að vaxa í starfi. Þetta byggist þó ekki einungis á orðum heldur aðgerðum sem stuðla að því að allir fái jöfn tækifæri, óháð kyni,“ segir Sólrún Jóna.

Hafa tvisvar fengið viðurkenningu Jafnréttisvogar FKA

Orkusalan hefur einmitt lagt mikla áherslu á

...