Hlutverk Terra er að stuðla að sjálfbærni viðskiptavina með því að koma öllum þeim efnum sem til falla í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið. „Að skilja ekkert eftir“ er þýðing félagsins á hugtakinu „Zero Waste“ og lýsir vel markmiðum okkar í endurvinnslu og meðhöndlun úrgangs,“ segir Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir, forstöðumaður viðskiptadeildar hjá Terra. „Starfið er skemmtilegt og krefjandi sem er nauðsynleg forsenda þess að vaxa sem stjórnandi en það sem stendur upp úr eru vinnufélagarnir sem eru ekki bara skemmtilegir heldur líka metnaðarfullir og góðir í sínu. Kjarnastarfsemi félagsins er víðtæk umhverfisþjónusta en fyrirtækið hefur starfað við söfnun og flokkun úrgangs og endurvinnsluefna frá árinu 1984,“ segir hún. Með því að styðja og einfalda úrgangsflokkun viðskiptavina sinna í að stuðla að hringrásarhagkerfinu styðja þau við sjálfbærnivegferð þeirra. „Hjá Terra
...