Nýja árið leggst gríðarlega vel í mig, við endurnýjuðum ELKO Lindir, sem er stærsta framkvæmd sem ELKO fór í á síðasta ári. Vegna framkvæmda voru nokkur verkefni sem þurftu að bíða og ég er því mjög spennt að geta farið í þau af krafti á þessu ári. Við erum mjög metnaðarfull og markmiðið er að vinna Íslensku ánægjuvogina. Verkefni sem tengjast því að eiga ánægðustu viðskiptavini í raftækjaverslunum eru meðal annars að efla þjálfun í heildrænni þjónustu, vera best í úrlausnum þjónustumála og tímabókunum á vef fyrir þjónustu í verslun svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Dagbjört Vestmann, forstöðumaður verslanasviðs ELKO.
Dagbjört hefur starfað fyrir fyrirtækið í 14 ár og sjálf gegnt alls konar stöðum innan þess. „Árið 2006 byrjaði ég á afgreiðslukassa í ELKO Skeifunni. Síðan varð ég sölufulltrúi, svæðisstjóri og árið 2010 verslunarstjóri. Ég tók svo við stöðu
...