Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vinkonurnar Heiðrún Mjöll Jóhannesdóttir og Brynhildur Þorbjarnardóttir byrjuðu með fyrirtækið Vínvísa (vinvisar.is) um miðjan október í þeim tilgangi að bjóða upp á vínfræðslu í heimahúsum, hjá félögum, fyrirtækjum og stofnunum. „Það hefur gengið mjög vel og við gátum ekki sinnt eftirspurninni fyrir jólin,“ segir Heiðrún og bendir á að þær mæti með allt sem til þarf til að bjóða upp á skemmtilega stund.
Stöllurnar hafa mikinn áhuga á víni og eru í námi í vínfræði. Heiðrún segir að upplýsingar og fræðsla um vín sé oft á háfleygum nótum og því hafi þær viljað breyta. Gjarnan sé látið að því liggja að vínfræði sé mjög flókin, en þær einfaldi málin til að allir geti verið með á nótunum. „Við tölum um vín á mannamáli, svo allir skilji um hvað er
...