Það er ótrúlegt þrekvirki sem mörg hafa unnið er kemur að því að rétta hlut kynjanna og FKA stendur vaktina eins og fleiri í íslensku samfélagi.
Unnur Elva Arnardóttir hefur verið formaður FKA síðustu tvö ár en félagi í FKA í 15 ár.
Unnur Elva Arnardóttir hefur verið formaður FKA síðustu tvö ár en félagi í FKA í 15 ár. — Ljósmyndir/Silla Páls

FKA stendur vaktina í íslensku samfélagi almennt og mögulega verður tekin aukavakt á Kvennaári sem nú gengur í garð,“ segir Unnur Elva Arnardóttir formaður FKA, glöð í bragði. Félagið fagnaði 25 ára afmæli sínu í fyrra og nú er talið í öflugt Kvennaár 2025 í íslensku samfélagi þar sem 50 ár eru liðin frá kvennaverkfallinu. Unnur Elva er full tilhlökkunar fyrir árinu sem hefst með Viðurkenningarhátíð FKA á Hótel Reykjavík Grand þar sem konur verða heiðraðar á stórglæsilegum viðburði.

„Ísland er framarlega þegar kemur að jafnrétti og hefur verið til fjölda ára en auðvitað getum við gert miklu betur og til þess höfum við verkfæri eins og Jafnvægisvog FKA sem fyrirtæki sem eru með jafnrétti á dagskrá taka þátt í og við hvetjum til að fólk kynni sér verkefnið á heimasíðu FKA. Ég gæti talið upp endalausan lista af konum sem sett hafa mark sitt hér og byrjum auðvitað á að nefna

...