Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fara fram á að kostnaður við sviðsmyndir tengdar framtíð græna vöruhússins við Álfabakka í Breiðholti verði metnar af fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar. Á meðan
rýnt er í sviðsmyndirnar telja
borgarfulltrúarnir rétt að framkvæmdir við stálgrindarhúsið verði stöðvaðar tafarlaust.
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins flytur tillögu þess efnis á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn í næstu viku.
Í tillögunni, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, er lagt til að eftirtaldar sviðsmyndir verði metnar: Flutningur húsnæðisins á aðra hentuga lóð, sem ekki er í miðri íbúðabyggð, ásamt öllum tilheyrandi kostnaði, svo sem bótagreiðslum, byggingarréttargjöldum,
...